245.is  

 

   

Forsíða

    

Eldri fréttir

    

Viðtöl og greinar

    

Þankabrot

    

Nýir Sandgerðingar

    

Aðsent efni 

    

Myndasafn 

    

Smáauglýsingar 

    

Sandgerðisdagar 

    

Um vefinn

    

Auglýsingaverð

    

Hafa samband

   

Leitarvél














 



 

 Þjónusta í Sandgerði  

   

Afþreying

   

Bankar

    

Bensínstöðvar

    

Bílaviðgerðir 

    

Dagvöruverslun

    

Ferðir/Flutningar

    

Félög

    

Gisting

   

Gjafavörur

    

Heilsa og útlit

    

Kirkjustarf

   

Menning og listir

    

Opinber þjónusta

    

Sjávarútvegur

    

Skólar

    

Söfn/Sýningar

    

Tölvur og Internet

    

Veitingahús/Salir

    

Vélsmiðja

    

Verktakastarfsemi


 Fréttir

Þú ert hér > Forsíða > Fréttir

10.3.2010 18:48:55
Málþing um jarðminjagarða

Miðvikudaginn 24. mars næstkomandi verður haldið málþing um Jarðminjagarða (Geopark) á Íslandi í Salnum, Kópavogi.

Það eru Náttúrustofa Reykjaness, Náttúrustofa Suðurlands, Náttúrustofa Norðurlands vestra, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands og Jarðfræðifélag Íslands sem standa að málþinginu.

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir og Óskar Bergsson, formaður Borgarráðs ávarpa þingið og svo verða ellefu 20 mínútna erindi. Dagskrá málþingsins má lesa hér að neðan:

Fundarstjóri:  Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs

12:30 – 12:40 Setning
Þorsteinn Sæmundsson, formaður Jarðfræðafélags Íslands og forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra

12:40 – 12:50 Ávarp
Svandís Svavarsdóttir, Umhverfisráðherra

12:50 – 13:00 Ávarp
Óskar Bergsson, formaður Borgarráðs

13:00 – 13:20 Eldfjallagarður og jarðminjar á Reykjanesskaga
Helgi Páll Jónsson, Náttúrustofu Norðurlands vestra

13:20 – 13:40 Jarðfræði Íslands, sérstaða og tengsl við heimsmynd jarðfræðinnar
Ármann Höskuldsson, Jarðvísindastofnun Háskólans

13:40 – 14:00 Hvers virði er landslag?
  Hreggviður Norðdahl, Jarðvísindastofnun Háskólans

14:00 – 14:20 Hvað er jarðminjagarður?
Lovísa Ásbjörnsdóttir, Umhverfisstofnun

14:20 – 14:40 Frá Þingvöllum til Reykjaness: Eldvirknigarður á Suðvesturlandi
 Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur

14:40 – 15:10 Kaffi

15:10 – 15:30 Eldfjallagarður á Reykjanesskaga
Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri Grindavík

15:30 – 15:50 Aðdráttarafl jarðfræðinnar – hugmyndir um geopark á Íslandi
Rögnvaldur Ólafsson, Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands

15:50 – 16:10 Jarðminjagarðar og ferðaþjónusta
Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri

16:10 – 16:30 Jarðminjagarður á Suðurlandi
Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í VÍk

16:30 – 16:50 Frá Háleyjabungu að Hafnabergi: Jarðminjar, orka, náttúra
Kristján Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja

16:50 – 17:10 Samband jarðfræðilegrar og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi
Skúli Skúlason, Rektor Háskólans á Hólum

17:10 – 17:20 Lokaorð
Ingvar Atli Sigurðsson, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands

Aðgangur ókeypis. Þátttaka tilkynnist á netfangið steini@nnv.is fyrir 22. mars.

 



Prentvæn útgáfa

   
    Til baka